KA3 og Hamrarnir áttust við í spennandi leik á föstudagskvöldið í Boganum. KA3 byrjuðu leikinn mun betur og komust í 2-0 snemma leiks með tveimur mörkum frá Maroni Björgvinssyni. Oliver Jóhannsson minnkaði muninn fyrir Hamranna skömmu fyrir hálfleik en á síðustu andartökum fyrrihálfleiks kom Sigursteinn Birgisson KA3 í 3-1. Fátt markvert gerðist í síðari hálfleik en á 74.mínútu skoraði hinn 14 ára Sigurður Emil Óskarsson fyrir Hamranna, en hann var þá ný kominn inná í sínum fyrsta meistaraflokksleik. Fleiri urðu mörkin ekki og sigur KA manna staðreynd 3-2.
Síðar um kvöldið áttust við lið Dalvíkur/Reynirs og Magna. Magnamenn komust í 0-2 með tveimur mörkum frá Tómasi Arnarssyni. Birgir Valur Ágústsson kom Magna í 3-0 áður en Mikael Aron Jóhannsson minnkaði muninn fyrir Dalvíkinga. Dalvíkingar skoruðu svo aftur, í þetta skipti Sindri Sigurðsson, úr vítaspyrnu. Lengra komust þeir hinsvegar ekki og Magnamenn halda áfram sigurgöngu sinni.
Í dag áttust við Þór2 og Höttur/Huginn. HH komust yfir nokkuð snemma leiks þegar Kristófer Páll sendi boltann fyrir og boltinn fór af Þórhalli í netið. Viktor Smári Sveinsson jafnaði fyrir Þórsara en þá var mikil skothríð búin að standa yfir að marki HH en Hallgeir markvörður þeirra átti stórleik og hélt HH í leiknum, 1-1 í hálfleik. Leikurinn var jafnari í seinni hálfleik og kom Ívar Logi Jóhannsson HH yfir með góðu skoti fyrir utan teig, stöngin inn. Þórsarar jöfnuðu með marki frá Hauki Leó Þórðarsyni eftir sofandahátt í vörninni hjá HH. Leikurinn var nokkuð mikið fram og tilbaka en mörkin voru ekki fleiri. Höttur/Huginn sitja þá einir á toppi riðilsins en hafa lokið sínum leikjum