Fjöldi leikja er framundan í Kjarnafæðimótinu um helgina og segja má að nú sé boltinn farinn að rúlla fyrir alvöru. Allir leikir helgarinnar fara fram í Boganum en vonandi verður hægt að færa einhverja leiki út á næstunni þar sem veðurfræðingar eru farnir að lofa öllu fögru.
Veislan hefst á föstudagskvöldið klukkan 19:10 þegar mætast í B-deild lið Hamrana og KA3. Hamrarnir eru að rísa upp enn eina ferðina en lið undir nafni þess félags hafa keppt í Íslandsmótum með hléum í mörg ár. Í ár tefla þeir fram liði undir stjórn Vopnfirðingsins góðkunna Sigurðar Donys og Mikaels Freys Rúnarssonar. Liðið er skipað blöndu af reyndum leikmönnum Samherjanna úr Eyjafjarðarsveit og kornungrum og efnilegum KA strákum. Búast má við jöfnum og skemmtilegum leik en með sigri geta Hamrarnir náð Völsungi 2 sem er á toppi deildarinnar. KA3 eru búnir að spila einn leik þar sem þeir töpuðu fyrir sterku liði Völsungs 2.
Stórleikur verður í húsinu kl 21, en á þeim leiktíma á föstudagskvöldum, hefur jafnan verið fjöldi áhorfenda. Eigast þar við lið Dalvíkur/Reynis og Magna. Það er gömul saga og ný að þegar þessi lið mætast er allt undir, sama á hvaða árstíma leikirnir fara fram. Magni gjörsigraði Lengjudeildarlið Völsungs í fyrstu umferð og virðast vera til alls líklegir undir stjórn nýs þjálfara, Guðmundar Óla Steingrímssonar. Dalvíkingar hafa leikið tvo leiki í mótinu og tapað báðum en naumlega þó. Annarsvegar gegn Lengjudeildarliði Þórs og svo gegn íslandsmeisturum 2.flokks KA. Það er alveg ljóst að þarna verður hörku leikur og mikil barátta. Fátt er skemmtilegra á köldu föstudagskvöldi í svartasta skammdeginu en að skella sér inn í hlýjuna og birtuna í Boganum og horfa á alvöru grannaslag.
Á laugardag kl 17 eigast við Þór2 og Höttur/Huginn. Ungu strákarir í Þór2 töpuðu naumega í opnunarleik mótsins fyrir bikarmeisturum KA en gerðu svo jafntefli við sterkt lið KFA frá austfjörðum. Þeir hafa sýnt að þeir eiga í fullu tré við meistaraflokksliðin hér á svæðinu og verður gaman að sjá þá spila við Egilstaðabúa og Seyðfirðinga sem eru á toppi riðilsins ásamt KA. Þeir sigruðu KFA í leik sem leikinn var á Reyðarfirði um síðustu helgi og hafa sýnt flotta spretti í mótinu.
Á sunnudag verð leiknir þrír leikir, þar af tveir leikir í kvennadeildinni, þar sem öll þrjú Bestudeildarliðin verð í eldlínunni.
Kl 13 eigast við austanstelpur í FHL og Tindastóll. Þetta er fyrsti leikur FHL í mótinu en þær munu spila í Bestudeildinni í sumar eftir að hafa sigrað Lengjudeildina örugglega í haust. Tindastóll hefur spilað einn leik, en í desember töpuðu þær naumlega fyrir Þór/KA 0-1. Búast má við hörkueik og um að gera að skella sér og sjá Bestudeildarslag af bestu gerð.
Kl 15 verður sannkallaður stórleikur þegar Lengjudeildarliðin Þór og Völsungur eigast við. Þórsarar töpuðu síðasta leik sínum, en fara þarf ansi mörg ár aftur í tímann til að finna tap hjá Þór í riðlakeppni Kjarnafæðimótsins. Völsungar töpuðu líka síðasta leik sínum og það illa, fyrir Magna. Ljóst er að þarna verður hart barist og ekkert gefið eftir frekar en vanalega þegar þessi lið eigast við.
Í lokaleik dagsins eigast svo við kvennalið Völsungs og Þór/KA. Völsungur,sem leikur í 2.deild, eru að spila sinn fyrsta leik í mótinu en Þór/KA hafa spilað einn leik sem þær unnu. Þó svo að liðin séu á ólíkum stöðum í íslandsmótinu má búast við skemmtilegum leik því Völsungur var aðeins hársbreydd frá því að komast upp í Lengjudeildina í haust. Mikið er af ungum og efnilegum stelpum í liðinu og munu þær selja sig dýrt gegn þekktari leikmönnum Þór/KA. Semsagt…nóg um að vera í Boganum alla helgina og óvenju margir spennandi leikir. Hvetjum við alla til að líta við og styðja sitt lið.