Kjarnafæðimótinu er síður en svo lokið og Höttur vann sannfærandi 5:2 sigur á Þór 3 í leik sem fram fór í Boganum í gær. Leikurinn var um þriðja sæti B riðils.
Höttur byrjaði leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 7. mínútu þegar Heiðar Logi Jónsson skoraði fyrsta mark leiksins. Þór 3 minnkaði muninn á 10. mínútu með marki frá Lárusi Sölva Biering, en Heiðar Logi var aftur á ferðinni á 30. mínútu og kom Egilsstaðabúum aftur yfir. Viktor Ingi Sigurðarson bætti við þriðja marki Hattar á 40. mínútu.
Eyþór Magnússon skoraði fjórða markið á 55. mínútu og Steinþór Árni Aðalsteinsson gerði fimmta markið á 66. mínútu og innsiglaði þar með stórsigur Hattar. Haukur Ingi Ólafsson náði að laga stöðuna fyrir Þór 3 með marki á 90. mínútu, en nær komust heimamenn ekki. Lokatölur 5:2 og Höttur þar með í þriðja sæti riðilsins. Úrslitaleikur KF og Tindastóls fer fram síðar.




