Tveir leikir fóru fram í Kjarnafæðimótinu í dag en fresta þurfti leik Þór/KA og Völsungs.
Kl 13 mættust Bestudeildarlið Tindastóls og FHL í kvennadeildinni. Jafnræði var með liðunum í fyrrihálfleik en Elísa Bríet Björnsdóttir kom þeim yfir á markamínutunni frægu. Í seinni hálfleik tóku Tindastólsstelpur algjörlega yfir leikinn. Elísa skoraði aftur á 47.mínutu , Laufey Harpa Halldórsdóttir skoraði svo á 49.minútu og Elísa fullkomnaði þrennuna á 59.mínútu. FHL náði að klóra í bakkann með marki frá Björgu en eftirnafn hennar kom ekki fram á skýrslu. Áfram héldu þær Skagfirsku og Birgitta Rún Finnbogadóttir kom þeim í 5-0 á 80.mínútu . María Dögg Jóhannsdóttir setti lokamarkmið á 89.mínutu og stórsigur Tindastóls staðreynd, 6-1
Kl 15 var komið að stórleik Þórs og Völsungs í A deild karla. Þórsarar voru mikið sterkari í upphafi leiks og skoruðu strax á 5.mínutu og var þar að verki Franskur leikmaður að nafni Remi Emeriau. Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði annað mark Þórsara á 24.mínutu og Aron Ingi Magnússon skoraði á 28 mínútu og staðan 3-0 í hálfleik. Völsungar komu sprækari út eftir hlé og Gestur Aron Sörensson minnkaði muninn á 57.mínútu beint úr aukaspyrnu. En þá hertu Þórsarar tökin á nýjan leik og Sverrir Páll Ingason skoraði á 70.mínutu og Kjartan Ingi Friðriksson skoraði svo strax á 72.mínutu . Páll Veigar Invason skoraði svo lokamark Þórsara og úrslit leiksins, eins og þess sem var fyrr í dag , 6-1