Ótrúleg markaveisla átti sér stað í leikjunum sem spilaðir voru í Kjarnafæðimótinu á föstudagskvöld en 26 mörk voru þá skoruð í leikjunum þremur. Veislan hófst klukkan 18 í Boganum er þar áttust við lið Þór/KA2 og Tindastóls. Þór/KA komst yfir á 9. mínútu þegar Eva Dolina skoraði, en Tindastóll svaraði með tveimur mörkum frá Sögu Ísey og Birgittu Rún Finnbogadóttur fyrir leikhlé og svo því þriðja snemma í seinni hálfleiknum,einnig frá Birgittu Rún. Halla Bríet Kristjánsdóttir, leikmaður Völsungs, sem spilaði sem lánsmaður með Þór/KA í leiknum, minnkaði muninn í 3-2 þegar 18 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og Hafdís Nína Elmarsdóttir jafnaði metin á 89.mínútu. Báðar komu þær inn af varamannabekknum og skoruðu. Birgitta Rún Finnbogadæottir var samt ekki á því að taka bara eitt stig með sér vestur yfir Öxnadalsheiðina, heldur setti sigurmarkið og fullkomnaði þrennuna sína á þriðju mínútu uppbótartímans og tryggði sigur Tindastóls 3-4.
Á sama tíma áttust við á PCC vellinum á Húsavík,lið Völsungs og KA2 í A deild. KA menn voru með fullt hús stiga á toppnum fyrir leikinn en Völsungar sátu á botninum án stiga. Eitthvað hefur stutt ferðalag KA manna farið ílla í þá því Völsungar voru komnir í 4-0 áður en Sigurjón Vignisson bóndi að Höfða í Grýtubakkahreppi flautaði til hálfleiks. Þá hafði Gestur Aron Sörensen skorað þrennu og Aron Bjarki Kristjánsson eitt. Áfram hélt markaveislan í upphafi síðari hálfleiks en KA menn voru búnir að minnka muninn í 4-3 þegar 15 mínútur voru liðnar af honum, með mörkum frá Valdimar Loga Sævarssyni og tveim mörkum frá Bjarka Fannari Helgasyni leikmanni Hattar/Hugins en hann lék sem lánsmaður með KA í leiknum. Tryggvi Grani Jóhannsson kom Völsungum í 5-3 á 73.mínútu og Jakob Héðinn Róbertsson skoraði sjötta mark þeirra á 83. Gabríel Lukas Freitas Meira klóraði í bakkann fyrir KA á 86. mínútu og þar við sat. Völsungssigur 6-4.
Í Boganum klukkan 20 áttust við Þór og Magni í A deild sem einnig var söfnunarleikur fyrir okkar mann Bigga rauða. Úr varð mikil skemmtun fyrir framan mikið af fólki sem borgaði sig inn og keypti veitingar, allt til styrktar Bigga. Því miður varð leikurinn aldrei spennandi en Þórsarar léku við hvern sinn fingur og unnu á endanum 9-0 sigur. Aron Ingi Magnússon skoraði fyrsta markið á 17.mínútu og Remi Emireau það næsta á 21.mínútu. Magnamenn potuðu svo inn einu sjálfsmarki áður en Þóroddur Hjaltalín flautaði til hálfleiks. Mörkin komu á færibandi í seini hálfleik en Einar Halldórsson skoraði á 62.mínútu og Ingimar Arnar Kristjánsson á þeirri 64. Einar hélt áfram og skoraði á 67.mínútu og markavélin Ragnar Óli Ragnarsson skoraði á 72.mínútu. Þarna var kafli sem Þórsarar skoruðu 4 mörk á tíu mínútum. Ingimar fullkomnaði svo þrennu sína með tveimur mörkum á 88. og 90.mínútu og 9-0 sigur Þórsara á Magna staðreynd.
Fresta þurfti þremur leikjum um helgina vegna ófærðar austur á land. Þetta voru leikir Völsungs og FHL, FHL og Þór/KA og að lokum leikur KA og KFA. Vonandi verður hægt að spila þessa leiki á næstunni.
Á miðvikudagskvöldið fóru fram tveir leikir í B deild þar sem Þór3 og KA3 gerðu 3-3 jafntefli og Hamrarnir sigruðu Völsung2 þremur mörkum gegn engu.
Í kvöld áttust svo við í A deild lið Þórs2 og KF. Bandaríkjamaður á reynslu, Brendan Koplin, kom KF yfir á 15.mínútu og þannig stóðu leikar fram á 61.mínútu þegar Peter Ingi Jones Helgason jafnaði fyrir Þór og kom þeim svo yfir á 68.mínútu. Húsvíkingurinn Frank Cabezas gulltryggði svo sigur Þórsara á 84.mínútu gegn þreyttum Ólafsfirðingum sem æfa aðallega í innanhúsfótbolta yfir háveturinn