Ingimar Stöle með þrennu fyrir KA

KA og KF mættust í frestuðum leik í A deild Kjarnafæðimótsins í kvöld. Búast mátti við miklum yfirburðum KA manna en það tók þá samt sem áður 65 mínútur að brjóta ísinn gegn Ólafsfirðingum sem vörðust vel.

Ingimar Thorbjörnsson Stöle skoraði þrennu fyrir KA á 65. ,75. og 80. mínútu. Viktor Breki Hjartarson skoraði fjórða og síðasta markið á 87. mínútu. Leikurinn var prúðmannlega leikinn, en þrátt fyrir það voru tveir leikmenn komnir upp á sjúkrahús áður en flautað var til hálfleiks. Þeir félagar sendu okkur þó mynd eftir að búið hafði verið að sárum þeirra og sendum við þeim bestu batakveðjur.

Skýrslur leiksins

Myndir úr leiknum