Þór 3 eru sigurvegarar B deildar 2024

Einn leikur fór fram í Kjarnafæðimótinu í kvöld. Þór3 sigraði þar KA4 með tveimur mörkum gegn einu en fyrir leikinn voru Þórsarar þegar búnir að tryggja sér sigur í B deild mótsins.

Bjarmi Már Eiríksson hélt áfram að skora mörk og skoraði á 30.mínútu og stóðu leikar 1-0 fyrir Þór í hálfleik. Viktor Smári Sveinsson skoraði annað mark Þórsara á 60.mínútu og gulltryggði þeim fullt hús stiga í mótinu. Einn leikur er eftir í B deildinni,en KA3 og KA4 spila sinn leik á KA vellinum á mánudagskvöldið næstkomandi.

Við óskum Þórsurum innilega til hamingju með stórsigur í B deildinni árið 2024