Jafntefli hjá KA2 og Leikni

KA2 2-2 Leiknir F
0-1 65′ Hlynur Bjarnason
1-1 70′ Kristján Már Guðmundsson
2-1 83′ Emil Þór Guðmundsson (sjálfsmark)
2-2 86′ Unnar Ari Hansson

KA2 og Leiknir F áttust við í hörkuleik í B-deild Kjarnafæðimótsins. Markalaust var í hálfleik en svo fóru hlutirnir að gerast um miðjan síðari hálfleikinn. Hlynur Bjarason kom Leiknismönnum yfir á 65. mínútu leiksins, en það tók KA2 ekki nema fimm mínútur að jafna leikinn – þar var á ferð Kristján Már Guðmundsson. Emil Þór Guðmundsson leikmaður Leiknis varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 83. mínútu og KA2 þar með komið 2-1 yfir. Leiknismenn gáfust aftur á móti ekki upp og uppskáru jöfnunarmark á 86. mínútu frá Unnari Ara Hanssyni. Leiknum lauk því með jafntefli, 2-2.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *