Líkt og byrjun Kjarnafæðimótsins markar upphaf aðventunar þá boðar úrslitaleikurinn upphaf vorsins og þar með sumarkomu. Eins og svo oft áður eru það Bestudeildarlið Þórs og KA sem leika til úrslita þetta árið. Þrátt fyrir að lóan sé komin til landsins ákvað vetur konungur að minna rækilega á sig síðustu daga og mun leikurinn því fara fram undir ljósunum í Boganum klukkan 18:00 í kvöld föstudaginn 27. mars.
Liðin
Mikil spenna ríkir fyrir komandi tímabil hjá báðum liðum. Félögin tvö hafa ekki verið saman í efstu deild síðan árið 2002 og vilja þau bæði sýna það og sanna að þau eigi heima í deild þeirra bestu. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópum beggja liða. Þórsarar hafa fengið heimamenn til baka ásamt fleiri styrkingum sem gaman verður að fylgjast með. Á brekkunni eru menn ekki minna stórhuga og hefur koma Danijel Djuric stolið flestum fyrirsögnum. Er þar á ferð mikill skemmtikraftur sem lita mun deildina.
Leikur sem engin má missa af
Mikið hefur verið rætt og ritað að leikir Þórs og KA séu með síðustu alvöru nágrannaslögum sem eftir eru á Íslandi. Ljóst er að hvorugt liðið vill tapa fyrir hinu en með svo stutt í mót vilja bæði liðin leggja línurnar fyrir komandi tímabil. Má segja að um general prufu fyrir Bestu deildina sé að ræða og auðvitað fyrsti titill tímabilsins í boði.
Leikið verður eftir nýjum reglum knattspyrnunnar en ýmissa spennandi breytinga má vænta í sumar. Helst ber þar að nefna að nú getur dómarinn beitt fimm sekúndna niðurtalningu ef leikmaður tefur við töku innkasts. Kasti leikmaðurinn ekki boltanum inn fyrir þann tíma er mótherjanum dæmt innkast í staðinn. Er þetta líkt og því sem við fengum að kynnast í fyrra þegar markmaður tekur útspark.
Líkt og fram hefur komið hefst leikurinn klukkan 18:00 og viljum við hvetja alla, stuðningsmenn og þá sem eru í skíðaferð eða öðrum erindargjörðum, að mæta og styrkja gott málefni. Aðgangseyrir er 1.000 -kr. og rennur hann óskiptur til Kvennaathvarfsins. Sjómönnum, bændum og öðrum sem af einhverjum ástæðum komast ekki á leikinn er bent á Spiideo útsendingu sem auglýst verður á Facebook síðu KDN.
