KF sigruðu B-deildina í Kjarnafæðimótinu eftir að Tindastóll gaf úrslitaleik þeirra sem fyrirhugaður var nú í vikunni.
KF eru vel að sigrinum komnir en þeir fóru taplausir í gegnum mótið og enduðu á að sigra Hött í undanúrslitum. Bikarinn fengu þeir svo afhentan eftir 3-0 sigurleik gegn Kormáki/Hvöt en sá leikur var æfingaleikur sem fram fór á Dalvík. Til hamingju KF!



