Hamrarnir með öruggan sigur á KA3 í B-deild

Hamrarnir voru mun sterkari aðilinn þegar þeir mættu KA3 í B-deild Kjarnafæðimótsins á Greifavellinum á sunnudaginn og fögnuðu að lokum afar sannfærandi 8–2 sigri.

Hamrarnir létu strax til sín taka og opnuðu markareikninginn strax á 3. mínútu þegar Rúnar Freyr Egilsson kom liðinu yfir. Í kjölfarið fylgdu mörk frá Kristófer Jónssyni á 7. mínútu og Bjarka Hafliðasyni á 13. mínútu og staðan orðin erfið fyrir KA3 snemma leiks. Vilhelm Magnússon minnkaði þó muninn fyrir KA3 á 14. mínútu og gaf sínum mönnum vonarneista. Hamrarnir héldu þó áfram að stjórna leiknum og Tómas Guðmundsson bætti við fjórða marki liðsins á 33. mínútu. Staðan í hálfleik var því 4–1 Hömrunum í vil eftir yfirburði þeirra í fyrri hálfleik.

KA3 mættu sprækari til leiks í upphafi seinni hálfleiks og sköpuðu sér nokkur ágæt færi, en náðu ekki að saxa verulega á forskotið. Þvert á móti skoraði Tómas Guðmundsson sitt annað mark í leiknum á 67. mínútu og sló endanlega á vonir KA3. Mikael Arnarsson náði að skora annað mark KA3 á 81. mínútu, en Hamrarnir svöruðu af krafti undir lokin. Gauti Guðmann skoraði tvívegis, á 84. mínútu og í uppbótartíma, auk þess sem Alexander Þórisson bætti við marki á 86. mínútu og tryggði stórsigur Hamrana, 8–2.

Leikskýrslur:

Myndir: Ármann Hinrik