Þór sigraði KA2 í öðrum leik Kjarnafæðimótsins

Þór og KA2 áttust við í Kjarnafæðimótinu í Boganum í kvöld. Þórsarar tefldu fram nokkuð sterku liði í bland við unga stráka en lið KA2 var skipað leikmönnum úr 2.flokki.

Þórsarar sigruðu 4-0. Fannar Malmquist Gíslason kom Þórsurum yfir á 34 mín og þannig stóðu leikar í hálfleik. Aron Ingi Magnússon opnaði seinni hálfleikinn strax eftir 50 sekúntur með fallegu marki og Ingimar Kristjánsson skoraði svo á 62.mínútu og á 81.mínútu skoraði Viðar Már Hilmarsson eftir að hafa komið inn af bekknum skömmu áður.

Leiknum lauk eins og áður segir 4-0

Þórsarar spila næst gegn KF næstkomandi föstudag en KA2 eru komnir í jólafrí og eiga næsta leik gegn Völsungi þann 6.janúar.