KA – Þór2: 5-1

KA og Þór2 áttust við í upphafsleik Kjarnafæðimótsins í Boganum í kvöld.

KA menn sigruðu með 5 mörkum gegn einu.

Leikurinn var jafn fram á 24.mínútu þegar Daníel Hafsteinsson braut ísinn og í kjölfarið komu 3 KA mörk á næstu 9 mínútum. Ásgeir Sigurgeirsson skoraði á 26.mínútu og aftur á þeirri 30.

Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði svo fjórða mark KA á 33.mínútu.

KA menn skiptu svo flestum sínum mönnum útaf og leikurinn jafnaðist mikið við það.Þórsarar skoruðu sjálfsmark á 82.mínútu eftir að Jakob Gunnar Sigurðsson skaut í varnarmann Þórs og þaðan fór boltinn í eigið net.

Kristinn Bjarni Andrason minnkaði muninn fyrir Þórsara með fallegu skoti á 89.mínútu.