KA tryggði sér sæti í úrslitum A-deildar Kjarnafæðimótsins með öruggum 5–0 sigri á Magna þegar liðin mættust á Greifavellinum í gær. Leikið var í kulda, en undir fyrstu sól ársins sem setti skemmtilegan svip á leikinn.
KA-menn náðu undirtökunum snemma og komust yfir á 33. mínútu þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson kom boltanum í netið. Aðeins tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Birgir Baldvinsson forskotið og staðan 2–0 í hálfleik.
Í síðari hálfleik hélt KA áfram að sækja og bætti við þriðja markinu á 60. mínútu þegar Valdimar Logi Sævarsson skoraði. Hallgrímur Mar var aftur á ferðinni á 65. mínútu með sitt annað mark í leiknum og skömmu síðar, á 68. mínútu, innsiglaði Bjarki Fannar Helgason stórsigurinn með fimmta marki KA. Snorri Kristinsson bætti svo við marki í uppbótartíma. Sigurinn var sanngjarn og KA menn komnir í úrslitaleik mótsins.
Andstæðingur þeirra verða Þórsarar en á morgun eigast við í Boganum Þór2 og Þór og kemur þá í ljós hvort aðallið Þórs eða Íslandsmeistarar 2.fl fá sætið í úrslitum. Við hvetjum Þórsara unga sem aldna til að mæta í Bogann og horfa á þennan leik
Leikskýrslur:



































































































