Kjarnafæðimótið hefst á sunnudaginn

Opnunarleikur Kjarnafæðimótsins 2020 fer fram á sunnudaginn næsta þegar Þór og KA2 eigast við í Boganum á Akureyri klukkan 13:15. Mótið í ár hefur aldrei verið stærra en alls taka átján lið þátt í mótinu í þremur deildum.

KDN, Knattspyrnudómarafélag Norðurlands, hefur um árabil annast umgjörð mótsins. Í ár eru þrettán lið skráð til keppni í karlaflokki, sjö í A deild karla og sex í B deild. Mjög ánægjulegt er að sjá að fimm kvennalið eru skráð til leiks í Kjarnafæðimótinu í ár.

KA sigraði í A deild karla síðasta vetur. Með þeim í riðli í ár eru erkifjendur þeirra í Þór auk Magna úr Inkassodeildinni. Einnig eru Völsungur, Dalvík/Reynir, Leiknir Fáskrúðsfirði og KA2 með þeim í riðli.
Þrjú lið mæta alla leið frá Austurlandi til að taka þátt í mótinu. Áðurnefndir Leiknismenn taka þátt í A deild Karla en einnig tekur Huginn/Höttur þátt í B deildinni. Að auki tekur Fjarðabyggð/Leiknir/Höttur þátt í A deild Kvenna.

Fimm leikir munu fara fram fyrir jól en síðan mun verða leikið þétt í janúar og fram í byrjun febrúar áður en aðrar keppnir hefjast á vegum KSÍ.

Skipting liðanna niður í deildir er með þessum hætti:

A-deild karla: Dalvík/Reynir, KA, KA2, Leiknir F, Magni, Völsungur, Þór

B-deild karla: KA3, Huginn/Höttur, KF, Samherjar, Tindastóll, Þór2

A-deild kvenna: Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir, Hamrarnir, Tindastóll, Völsungur, Þór/KA

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *