Það var boðið upp á alvöru nágrannaslag á Akureyri þegar KA 4 og Þór 4 mættust á Greifavellinum a fimmtudagskvöldið. Þótt lítil snjókoma og svalur vindur hafi sett svip sinn á aðstæður, tókst liðunum að bjóða upp á mikla spennu sem náði hámarki í blálokin.
KA-menn byrjuðu leikinn af meiri krafti og nýttu meðvindinn vel til að sækja að marki gestanna. Það skilaði árangri strax á 21. mínútu: 1-0 (21. mín): Eiður Bekan Jónsson hjá KA kom sínum mönnum yfir með laglegu marki. Þórsarar bitu hins vegar frá sér þegar leið á og tókst að jafna metin rétt áður en gengið var til búningsherbergja: • 1-1 (45+2. mín): Smári Sigmar Viðarsson fann netmöskvana í uppbótartíma fyrri hálfleiks og tryggði að liðin fóru jöfn í hlé.
Síðari hálfleikur var jafn og spennandi þar sem bæði lið áttu í baráttu við vindinn og snjókomuna. Allt stefndi í vítaspyrnukeppni þar til í uppbótartíma, en þá dundi ógæfan yfir KA-menn og Þórsarar gengu á lagið með tveimur mörkum: •1-2 (90+2. mín): Hrafn Leví Þórðarson skoraði eftir að hafa komið inna stuttu áður og kom Þór yfir. •1-3 (90+3. mín): KA reyndu að sækja jöfnunarmarkið en Rúnar Vatnsdal nýtti sér fáliðaða vörn KA manna og innsiglaði sigurinn með þriðja marki Þórs. Niðurstaðan varð því 3-1 sigur Þórs í leik sem verður minnst fyrir ótrúlegan endasprett gestanna í kuldanum á Greifavelli.
Leikskýrlsa:


Myndir:







