Í Boganum klukkan 15 á laugardaginn áttust við Austfirðingarnir í KFA og Evrópufarar 2.fokks í KA2.
Mikið jafnræði var með liðunum en KFA komust í 2-0 fyrir hálfleik með mörkum frá Nóa Egilssyni á 4.mínutu og þjálfaranum Eggerti Gunnþóri Jónsssyni sem spilaði í framlínu Austfirðinga. Hinn 14 ára Jason Eide Bjarnason kom KFA í 3-0 á 53.mínutu og allt stefndi í öruggan sigur.
Skömmu síðar kom Siglfirðingurinn Agnar Óli Grétarsson inná hjá KA mönnum og átti eftir að breyta leiknum. Matheus Bissi fékk að líta rauða spjaldið á 75.mínútu og við það kviknaði á KA mönnum. Agnar skoraði á 79.mínútu og lagði svo upp mark fyrir Halldór Ragúel Guðbjartsson á 87.mínútu. Agnar Óli jafnaði svo leikinn djúpt inní uppbótartíma og 3-3 jafntefli niðurstaðan í skemmtilegum leik.




















































































