Byrjendanámskeið fyrir dómara 15.febrúar

Byrjenda námskeið fyrir knattspyrnudómara verður haldið í sal Einingar/Iðju Skipagötu 14 Akureyri miðvikudaginn 15. febrúar kl. 19:30. Ókeypis aðgangur er á námskeiðið og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður farið yfir:

  • kynningarefni
  • fræðsluefni
  • skýringar
  • skýringarmyndir

Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Námskeiðið er um tvær klukkustundir og er 100% viðvera skilyrði.

Skráning er hafin (áhugasamir aðilar sendi tölvupóst á thoroddur@ksi.is). Einungis staðfestar skráningar gefa rétt til setu á námskeiðinu.