Þór braut ísinn á 78.mín

Þór og KF áttust við í fyrsta leik helgarinnar í Boganum kl 18.

Þórsarar voru mun sterkari aðilinn í leiknum en lentu þó í vandræðum með spræka Ólafsfirðinga og Siglfirðinga. Staðan var markalaus í hálfleik og allt fram á 78.mínútu þegar Ingimar Arnar Kristjánsson braut loks ísinn fyrir Þór. Hinn 15 ára gamli Egill Orri Arnarson skoraði svo annað mark Þórsara á 83.mínútu og var það síðasta mark leiksins sem endaði 2-0 fyrir Þór.

Bæði liðin eru nú komin í jólafrí og mæta spræk til leiks aftur snemma í janúar.