Sjötti Bergmanninn til að skora

Í fyrrakvöld áttust við í Boganum, Völsungur og KFA.

Mikið jafnræði var með liðunum og hraðinn í leiknum mikill framan af. Völsungar sóttu stíft en KFA verjast frábærlega eins og sjá mátti í markalausu jafntefli þeirra við Þór fyrir viku. Markakóngur Kjarnafæðimótsins frá upphafi,  Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði fyrsta mark Völsunga með lokasnertingu fyrrihálfleiks og leiddu þeir því í hálfleik. Sama var upp á teningnum í þeim síðari, Völsungar sóttu stíft en KFA vörðust vel.

Andri Valur Bergmann Steingrímsson skoraði svo tvö mörk fyrir Völsunga á 49.mínútu og 64.mínútu. Sú ótrúlega staðreynd leit þá dagsins ljós að nú hafa allir sex Bergmannbræðurnir, Guðmundur Óli, Sveinbjörn, Hallgrímur Mar, Ólafur, Hrannar og Andri skorað fyrir meistaraflokk Völsungs í Kjarnafæðimótinu og hlýtur það að vera met sem seint eða aldrei verður slegið.

Benedikt Helgi Valsson klóraði í bakkann fyrir KFA á 83.mínútu en lengra komust þeir ekki og Völsungar lönduðu öruggum 3-1 sigri.

Leikskýrslur:

Myndir: Ármann Hinriki